17.6.2008 | 17:10
Stökur
Einstaka sinnum detta stökur í huga mér, næstum svona af sjálfu sér. Þannig var það í morgun þegar ég las fréttirnar. Þetta er þó sama stefið, tvítekið.
Ólíklegt að hann eldi launi
endar sjálfsagt í tómu rugli.
Bangski skokkar heim að Hrauni
heldur partý með egg og fugli
Bangsa leiðist ekki baun
búkinn færir ei með veggjum.
Kátur skokkar heim á Hraun
helst að leita að eggjum.
Flokkur: Vísur og ljóð | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.