26.5.2008 | 03:45
Ósammála, en...
Ég get ekki sagt að ég sé sammála þessum góðu konum. Ég tel að lagaaðgerðir geti ekki séð annað en að þessi ákvörðun dómsmálaráðuneytisins sé vel ígrunduð.
Ef banna á nektardans er réttast að Alþingi geri það. Lögreglan á ekki að vera að dæma einhvern stað útfrá því sem gerist annars staðar. Ef staðurinn hefur ekki verið brotlegur, hlýtur hann að eiga rétt á því að starfa.
En ég vil nú samt hrósa þessum konum. Svona á að mótmæla. Með friðsömum en táknrænum hætti. Það mættu margir taka sér það til fyrirmyndar.
Hreinsað út úr dómsmálaráðuneytinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.