19.3.2008 | 06:48
Ljótar myndir
Það hafa eki verið fallegar eða góðar fréttir sem hafa komið frá Tíbet undanfarna daga. Harkan er mikil en frásagnir mismunandi. En mín samúð er með Tíbetum og get ekki tekið undir þögn Íslenskra stjórnvalda hvað framferði Kínverja varðar.
Égrakst svo á myndir sem Frelsishreyfing Tíbeta hefur smyglað út úr landinu. Þær má finna hér.
Þær sýna ótvírætt að mikilli hörku hefur verið beitt, m.a. hnakkaskotum, ef marka má eina myndina.
En þetta eru nokkuð hrikalegar myndir og ekki við allra hæfi.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:52 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.