7.8.2007 | 20:01
Veðurspá II
Sem betur fer virðist veðurspáin frá því í gær ekki ætla að ganga eftir, ekki í það minnsta strax. Hér að Bjórá er skaplegt veður, rétt um 26°C og því sem næst sólarlaust. Nokkrir regndropar hafa fallið en ekkert bólar á þrumuveðrinu og úrhellinu sem sömuleiðis var í kortunum.
Stundum er hægt að gleðjast yfir því hvað veðurspár eru óútreiknanleg vísindi.
En það er allt klárt fyrir hitann. Busllaugin var fyllt í gær og kæliskápurinn eftir ferð í "ríkið" í morgun.
Nú er bara að bíða.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.