23.8.2006 | 16:20
Þá er það komið á hreint...
Það er auðvitað fyrir mestu að þetta sé komið á hreint. Að vafanum sé eytt.
Það er ljóst að það er aldrei hægt að setja saman reglur sem liðin finna ekki "göt" og reyna að "smeygja" sér í þau. Það er hins vegar áríðandi að dómar falli eins fljótt og auðið er.
Renault hafði vonast eftir því að geta notað þennan búnað í Tyrklandi, og það hafa líklega fleiri lið gert.
En ég held og vona að kappaksturinn um helgina verði góður, brautin er skemmtileg og býður upp á betri möguleika á framúrakstri en margar aðrar. Schumacher og Alonso eru báðir kokhraustir, gefa ekkert eftir í stríðinu, en það er næsta víst að Button, Barrichello, Raikkonen og margir fleiri hugsa sér einnig gott til glóðarinnar.
Í fyrra voru það McLaren og Renault sem skinu en ég hef fulla trú á Ferrari þetta árið.
Dómstóll FIA dæmir fjöðrunarbúnað Renaultbílanna ólöglegan | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Íþróttir | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:26 | Facebook
Athugasemdir
Mér hefur reyndar fundist loftið vera að fara úr Alonso, væri samt gaman ef hann héldi titlinum, hinir gætu þó bitið nett í hælana á þeim.
Birna M, 23.8.2006 kl. 18:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.