22.8.2006 | 18:47
"Baunað" á gengi íslensku krónunnar
Danir virðast hafa haft mikinn áhuga á gengi íslensku krónunnar og íslensku efnahagslífi undanfarin misseri. Sá áhugi virðist ekki vera í rénun ef marka má þessa frétt.
Mér finnst það nokkuð merkilegt að sparisjóður skuli bjóða viðskiptavinum sínum upp á þennan möguleika, og reikna ekki með að ég sjálfur legði í áhættu sem þessa með svo lítið eigið fé. Ég skil heldur ekki þá fullyrðingu að lántakendur eigi einungis á hætt að tapa sínum 6000 DKR og vöxtum af 300.000DKR, nema að sparisjóðurinn tryggi að ekki verði rýrnum á höfuðstól þess. Gjaldeyrisviðskipti eru í eðli sínu áhættusöm, og rýrnun á hugsanlegu gengi krónunnar gæti numið mun meira en þessu nemur.
Þó er ég trúaður á að gengi íslensku krónunnar eigi eftir að styrkjast á næstu árum, en ekkert er tryggt í þeim efnum frekar en öðrum, þannig að eins og áður sagði hefði ég ekki áhuga á að veðja um slíkt, nema með peningum sem ég hefði efni á að tapa. Lánsfé er ekki þess eðlis.
En einn af óvissuþáttunum er auðvitað kosningarnar í vor, hvernig ríkisstjórn verður mynduð að þeim loknum.
En það er vissulega áhugavert að heyra að "bauninn" hvetji almenning til að veðja á styrkingu íslensku krónunnar.
Danskur sparisjóður lánar viðskiptavinum til að veðja á íslensku krónuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Viðskipti | Aukaflokkar: Bloggar, Dægurmál, Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:48 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.