21.8.2006 | 00:36
Hvar er pláss fyrir Jón?
Rakst á þessa frétt á ruv.is. Þessar vangaveltur eru athygliverðar. Hvar fer nýkjörinn formaður Framsóknarflokksins fram í vor? Eins og kemur fram í fréttinni eru ráðherrar Framsóknarflokksins í fyrsta sæti í öllum kjördæmum nema Reykjavík norður. En það sæti getur varla talist öruggt sæti fyrir flokkinn eins og staðan er í dag.
En það er heldur ekki hægt með góðu móti fyrir formanninn að fara fram í öðru kjördæmi. Það hlýtur því að teljast líklegt að formaðurinn verði að leggja allt undir og fara fram í Reykjavík norður.
Það gæti því orðið eitt af því meira spennandi á kosninganóttina, að sjá hvort formaðurinn kemst á þing eður ei.
En Framsóknarmenn munu án efa leggja allt undir til að tryggja Jóni þingsæti, og hafa sýnt áður, að þegar mest á reynir koma þeir fram með góða kosningaherferð og tryggja sínum manni sæti, oft að því er virðist á móti líkunum.
Það má því líklega ganga út frá því sem vísu að mikið (fé) verði lagt undir í kosningabaráttu Framsóknarflokksins í vor.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Bloggar | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.