7.12.2016 | 10:06
Hver er lausnin fyrir Íslendinga í menntamálum?
Það má auðvitað ekki líta á PISA sem hinn endanlega stóra dóm yfir íslensku menntakerfi.
En það má heldur ekki líta fram hjá þeirri einkunn sem það fær. Það er varla til neinn betri samanburður á milli landa.
En burtséð frá því hvernig Ísland kemur út í samanburði við önnur lönd, er niðurstaðan ill ásættanleg og allra síst að þróunin liggur niður á við.
En hvað veldur?
Því er ábyggilega erfitt að svara, og á því sjálfsagt margar mismunandi skoðanir. En ég held að vandamálið verði ekki leyst með því einu að segja að það þurfi meiri fjárveitingar.
Niðurstaðan bendir til þess að eitthvað meira sé að en að lausnin geti verið fjármunir einir saman.
Ég held að Íslendingar hljóti að þurfa að huga að endurskipulagningu kerfisins í heild. Það er í raun undarlegt þegar litið er til þessarar niðurstöðu að gripið hafi verið til þess ráðs að stytta framhaldsskólann, eins og það væri líklegt til að skila betra menntakerfi í heild.
En eitt af því sem mér þykir eftirtektarvert við PISA niðurstöðuna er hvaða Evrópuland kemur í raun best út. Það er ekki eitt af Norðurlöndunum, það er ekki eitt af "ríku" löndunum í N-Evrópu.
Það er Eistland sem kemur í raun best út þegar dæmið er skoðað í heildina, stærðfræði, náttúruvísindi og lesskilningur.
Til þess að gera fátækt land í A-Evrópu, þar sem þjóðartekjur eru verulega lægri en á Íslandi og landið eyðir líklega lægra hlufalli af þeim í menntun en Íslendingar.
Land sem neyddist til að skera heiftarlega niður í framlögum til menntunar vegna afleiðinga fjármálakreppunnar, vegna þess að Eistland safnar ekki skuldum.
Kennaranám er 5 ár, meðallaun þeirra um 1100 euro (sem er rétt yfir landsmeðaltali), byrjunarlaunin rúmlega 900 euro (sem er undir landsmeðaltali).
Landsmeðaltal fyrir bekkjarstærð er ekki ýkja há, en í borgunun (og sérstaklega í þeim skólum sem oft eru taldir "betri") er ekki óalgengt að yfir 30 nemendur séu í bekk.
Allir nemendur fá ókeypis hádegismat, yfirleitt einfalda rétti.
Einkarekstur þekkist á eistneskum skólum, en þó er líklega um 90% af grunnskólum reknir fyrir framlög hins opinbera. En skólarnir eru sjálfstæðir, taka mikið af sínum ákvörðunum "innanhúss" og hafa mikið að segja um kennsluaðferðir.
Grunnskólar geta verið bæði "opnir" og "lokaðir", og vísar það til "umdæmis" og hvort þeir taka inn nemendur utan skólasvæðis. Sumir skólar eru bæði, það er eru til dæmis með 2. "stofur" fyrir sitt umdæmi og svo eina eða tvær "stofur" fyrir nemendur "utan svæðis". Í flestum tilfellum þurfa þeir nemendur að þreyta inntökupróf.
Þetta fyrirkomulag og sú samkeppni sem byggst hefur upp á milli skóla og á milli nemenda virðist henta Eistlendingum vel og hefur skilað þeim vel áfram í skólamálum.
Það er alls ekki þar með sagt að slíkt kerfi myndi henta á Íslandi. En mér þykir þó það blasa við að Íslendingar þurfa að fara í uppskurð á sínu kerfi og leita fanga víða.
En skólakerfi er eitt af þeim kerfum sem alls ekki á að umbylta á stuttum tíma.
Það þaf að huga vel að málunum og vanda til verksins.
Til lengri tíma litið ætti það ekki að vefjast fyrir íslenskum nemendum að fara á sama hraða og nemendur annarr ríkja gera. Útskrifast úr framhaldsskóla 18 ára.
En slíkar breytingar þarf að undirbúa vel.
Í Eistlandi má líklega skipta þeim ferli í þrennt (svo þeir séu einfaldaðir örlítið) 6. ár grunnskóli sem hefst við 7 ára aldur, 3ja ára miðskóli og svo 3ja ára framhaldsskóli.
Skólatími er ekki lengri en á Íslandi. Skóli hefst 1. september og lýkur í kringum 10. júni.
Skuldum börnunum okkar að gera betur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 19:06 | Facebook
Athugasemdir
Beinið kastljósinu að Gugðna forseta; er hann ekki landsfaðirinn sem að þiggur 35 milljónir á ári fyrir að leiða íslensku þjóðina inn í framtíðina?
Jón Þórhallsson, 7.12.2016 kl. 11:10
@Jón Þakka þér fyrir þetta. Ég get ekki séð að launakjör forseta hafi að nokkuð með hnignun íslenska menntakerfisins. Ég get ekki séð tenginguna.
Ég held ekki heldur að það sé hlutverk Guðna að leiða þá breytingu sem þarf að gera á menntakerfi.
En breytinga er líklega þörf.
G. Tómas Gunnarsson, 7.12.2016 kl. 11:20
"Eftir höfðinu dansa limirnir". Segir máltækið.
Ber hirðirinn enga ábyrgð á sinni hjörð?
Jón Þórhallsson, 7.12.2016 kl. 12:34
@Jón Þakka þér fyrir þetta. Ekki nenni ég að rífast við þig í tómu tilgangsleysi, en ég held að engin leið sé að segja að Guðni, eða nokkur forseti á undan honum sé "höfuð" íslenska menntakerfisins.
Hér þarf að líta til Menntamálaráðuneytis, Alþingis og ríkisstjórna, einnig sveitarstjórna sem reka grunnskólana og svo hagsmunaaðila sem tengjast skólastarfi.
Ég get ekki sagt að ég þekki ferlið og alla þá aðila sem hafa áhrif á íslenska menntastefnu og skólastarf, en ég er þó nokkuð viss um að forsetaembættið er ekki þar ofarlega á lista, ef það finnst á listanum yfir höfuð.
G. Tómas Gunnarsson, 7.12.2016 kl. 12:47
Kostnaður á hvert íslenskt grunnskólabarn er sá hæsti á norðurlöndum og líklega einn sá hæsti í heiminum. Skýringin á því að íslensk grunnskólabörn eru heilt yfir tossar verður því ekki skýrður með fjársvelti.
Það er hugsanlega helsta skýringin sé almennt áhugaleysi almennings, stjórnvalda og starfsfólks í grunnskólum. Kennarar, sem ítrekað hafa fengið falleinkum eru auðvitað uppteknari af eiginkjarabaráttu en að sinna sínu starfi, hæfileikalausir og metnaðarlausir og áhugalausir.
Það er alvarleg meinsemd í kerfinu og engin ãhugi á að bæta úr.
Bjarni (IP-tala skráð) 7.12.2016 kl. 18:36
@Bjarni Þakka þér fyrir þetta. Ég þekki þessar tölur ekki, en dreg þetta í sjálfu sér ekki í efa.
Ég held að lausnin geti alls ekki falist í meiri fjármunum, þó að slíkt gæti þurft að vera hluti af lausninni, alla vegna tímabundið.
En samspil heimila og skóla verður seint ofmetið og svo að efla metnað nemenda og viljann til þess að standa sig vel.
Hvernig kennarar eru á Íslandi nú til dags, þekki ég ekki. Mín reynsla af slíku er áratuga gömul, en þá voru metnaðarfullir kennarar í bland við þá sem höfðu útskrifast úr framhaldsskóla vorið áður.
En það sem mestu skipti var umhverfið og aginn og virðingin, sem þeim ýmist tókst eða misfórst að byggja upp.
G. Tómas Gunnarsson, 7.12.2016 kl. 19:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.