18.12.2015 | 07:01
Endurheimt votlendis lykilverkefni
Það ku vera rétt hjá Reykjavíkurborg að votlendi, varðveisla þess og endurheimt mun vera ákaflega mikilvægt til bindingar kolefna og varðveislu lífríkis.
Það kann því að virka nokkuð skringilegt að ef ég hef skilið stefnu borgarstjórnar rétt er eitt af hennar helstu stefnumálum að þrengja að og byggja í helstu votlendissvæði borgarinnar.
Væri nú ekki ráð að halda stefnunni með niðurlagningu flugvallarins áfram, en í stað þess að leggja stóran hluta svæðisins undir byggingar, væri stefnt að endurheimt og stækkun votlendis?
Þannig fengi borgin "öflugt lunga" nálægt hjarta sínu.
Skyldi slíkt ekki neitt hafa borist í tal í París? Í það minnsta yfir kaffibolla á Champs Élysées?
Hér iðar allt af lífi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Hæðni | Aukaflokkar: Dægurmál, Stjórnmál og samfélag, Umhverfismál | Breytt s.d. kl. 15:27 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.