17.5.2007 | 04:45
Ófyrirgefanlegt
Það er alveg sama hvað menn telja að málstaður sinn sé góður, ofbeldi og skemmdarverk eru aldrei réttlætanleg.
Ég veit ekki hverjir hafa verið þarna að verki, en sá málstaður að hindra framkvæmdir í kvosinni bíður mikinn hnekki við slíkan verknað. Það er reyndar nokkuð sama hvort er um að ræða skemmdir á vinnuvélum eða grindverkum þar um kring.
Ég ætla ekki að tjá mig sérstaklega um framkvæmdirnar, þar sem ég þekki ekki nógu og vel til, hef þó ekki getað séð skaðann sem umræddar framkvæmdir eiga að valda, en auðvitað eru skiptar skoðanir þar á.
En skemmdarverk eru engum til framdráttar og eiga ekkert skilið nema tilhlýðilega refsingu ef viðkomandi nást.
Skemmdarverk unnin á vinnuvélum í Álafosskvos | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Bloggar, Dægurmál | Facebook
Athugasemdir
Ég er algjörlega sammála því að svona háttarlag er óþolandi, en þekkt leið að láta það bitna á saklausum verktökum ef fólk er á móti framkvæmdum. Ég hef verið að lesa það sem fólk skrifar um málið í kvosinni og langar mig til að nota tækifærið og koma hinni hliðinni á framfæri, en ég þekki það áægtlega þar sem ég sit í bæjarstjórn og hef unnið að málinu.
Ég vil byrja á að taka það fram að þetta lagnaskurðamál tengist lögnum frá hverfinu sem senn rís á Helgafellstúninu. Þessar lagnir þurfa að koma hvort sem tengibrautin verður að veruleika eða ekki og er sú framkvæmd ekki háð deiliskipulaginu.
Ég vil líka nefna nokkra punkta um framkvæmdirnar fyrir ofan Álafosskvosina. Í skipulagmálum gilda lög sem bæjaryfirvöldum er gert að lúta og það hefur vissulega verið gert í þessu máli sem og haft samráð við íbúana. Ég hef staðið heils hugar að baki þessa ákvarðana um uppbyggingu í Helgafellshverfinu og tengibrautarinnar, en bæði hverfið og tengibrautin hafa verið á aðalskipulagi í um aldarfjórðung. Að mínu mati þá hefur verið vandað til verka á undirbúningstímanum m.t.t. mögulegra umhverfisáhrifa, hámarkshraði lækkaður á tengibrautinni, brautin felld betur inn í landið og fjær Álfosskvosinnin en fyrra skipulag gerði ráð fyrir. Mosfellsbær kannaði einnig lögum samkvæmt hvort framkvæmdin væri háð mati á umhverfisáhrifum. Bæjaryfirvöld hafa í öllu fylgt leikreglum skipulagsmála og gildandi laga og stoppaði málið eftir að bæði Skipulagsstofnun og umhverfisráðherra höfðu komist að þeirri niðurstöðu að framkvæmdin væri ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Sú niðurstaða var kærð til úrskurðarnefndar skipulags og byggingamála sem komst að þeirri niðurstöðu að ákæruatriði ættu ekki við, en taldi að samkvæmt nýjum lögum frá 2006 ætti að auglýsa deiliskipulagið með umhverfisskýrslu. Því var deiliskipulagið og framkvæmdaleyfið að 500 metra kafla tengibrautarinnar dregið til baka. Hér er hægt að sjá myndir af fyrirhugaðri tengibraut.
Það er svo annað mál hvort fók vill láta byggja í nágrenni við sig og sérstaklega þar sem þetta svæði hefur verið landbúnaðarsvæði hingað til. En nú er komið að uppbyggingu á þessum fallega stað sem er að mínu mati eðlileg þróun byggðar, en ég tel að yfirvöld á hverjum stað verði að leita leiða til að lágmarka rask og óþægindi þeirra sem fyrir eru, en í þessu tilfelli þá verður það vart gert með því að færa veginn inn í annað íbúahverfi fjær kvosinni þar sem kaupa þarf upp fjölmörg hús til að koma tengingunni fyrir.
Nú er verið að ljúka við umhverfisskýrsluna sem auglýst verður með deiliskipulaginu eins og nýju lögin um umhverfismat áætlana gera ráð fyrir og hafa þá íbúar á svæðinu enn á ný tækifæri til að koma athugasemdum sínum á framfæri. Hér er samantekt um málið og m.a. um kynningar og samráðsferlið.
Herdís Sigurjónsdóttir, 17.5.2007 kl. 10:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.