29.5.2012 | 15:06
Heitt og sveitt
Það hefur skollið á með miklum hitum hér í Toronto, í gær og í dag heldur hitamælirinn sig rétt undir 30°C í forsælunni. Í sólinni er því sem næst óbærilegt. Þegar viðbætist rakastig í kringum 70% verður lífið ekki auðvelt.
Það er ekki hægt annað en að hugsa hlýlega til þess sem fann upp loftkælinguna.
Rjómaísframleiðendur eru sömuleiðis ofarlega á vinsældalistanum.
Sem betur fer er von á að heldur dragi úr hitanum frá og með morgundeginum.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.