Sleepless in Toronto

Ég lét það eftir mér að halda kosningavöku hér að Bjórá til rétt ríflega 4 í nótt að staðartíma.  Það dugði þó ekki til að ná lokatölum.

En börnin veita enga miskun, enda ekki miklir áhugamenn um Íslenskar kosningar.  Ég var því vakinn hálf sjö og engin frekari grið gefin.

Það er því kaffi með vænum skammti af hlynsýrópi sem er notað til orkugjafar og er ég að komast hægt og rólega í gang, en dagurinn verður þó án efa erfiður.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband