Af stjórnleysi

Ég held að þetta sé hárrétt viðvörun, það er aukin hætta á upplausn í Líbanon, það sama má segja um svæði Palestínumanna og allir vita hvernig ástandið er í Írak.

Það er því ekki hægt að segja að það horfi friðvænlega í miðausturlöndum nú um stundir, og ekki líklegt að "sjá ég boða yður mikinn fögnuð" eigi eftir að heyrast þar víða á næstunni.

En það er líka vert að velta því fyrir sér að í öllum þessum löndum eru Íranir sakaðir um að hafa "járn í eldinum".  Það er vert að velta því fyrir sér hver séu hugsanleg markmið þeirra með því að kynda undir ólgu og stjórnleysi.

Þegar hugsanlegri ásókn þeirra eftir kjarnorkuvopnum er bætt í blönduna, er ekki að undra þó að mörgum sé hætt að lítast á blikuna.

 


mbl.is Varað við stjórnleysi og átökum í Líbanon
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband