4. ár

Leifur EnnoJá, í dag 22. janúar eru liðin 4. ár síðan Foringinn kom í heiminn, þá strax stæltur og pattaralegur. Þó er það eins og það hafi gerst í gær, ja eða fyrradag.

En auðvitað er ekkert eins og áður.

Í fyrsta sinn hefur afmælisins verið beðið með nokkurri eftirvæntingu og spáð í það hvort að einhverjir pakkar myndu skila sér.  Sem þeir auðvitað gera.

En það verður svona "mini" hátíðarhöld að Bjórá á morgun.  Stærri afmælisveisla bíður sunnudagsins.  Aðalrétturinn á morgun verður Eistnesk afmæliskringla sem afi kom með á sunnudaginn.

4. ár eru merkileg tímamót, það þýðir að drengurinn er boðinn velkominn í skólann í haust, nokkuð sem honum er þegar farið að hlakka til (svo er að sjá hvort að fögnuðurinn endist), námsviljinn enda drengnum í blóð borinn.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband