Jól í seinnipart janúar

Það var fallegt um að litast að Bjórá í morgun.  Snjórinn féll lóðrétt og fallega til jarðar og hvíta teppið lá yfir nágrenninu.

Foringinn vaknaði í bítið, leit út um gluggann síðan á pakkafjöldann sem beið þess að verða opnaður og sagði svo:  "Ég held að jólasveinninn sé kominn aftur".

En það var margt af góðum gjöfum, vagn, bílar, geisladiskar, bækur og nokkuð af fötum.  Bestu þakkir.

Síðan var snædd Eistnesk súkkulaðihúðuð afmæliskringla sem afi (drengsins) kom með frá "heimalandinu".  Staðgóður og seðjandi morgunverður það.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband