Diskó allan daginn og fram á kvöld

Það er hollt að dansa - heima sem annars staðar. Enn einn föstudaginn blæs tónlistarútgáfan Defected til beins streymis frá athyglisverðum plötusnúðum, hvaðanæva að úr heiminum.

Í dag koma fram Simon Dunmore, Dunmore Brothers, Dennis Ferrer, Catz n´Dogs, Dom Dolla, DJ Spen, Ferreck Dawn, Gorgon City og Themba.

Fjörið byrjar nú klukkan 13:00 að Íslenskum tíma og stendur til 22:00 í kvöld. Sent er út á Youtube og fleiri stöðum.

Þess má geta að ef einhver hefur áhuga á því að spreyta sig, er hægt að sækja um að koma fram í næstu viku.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband