Til hamingju

Mér líst vel á Sigrúnu sem bæjarstjóra Akureyringa og óska bæði henni og þeim til hamingju.

Sigrún er ábyggilega vel að starfinu komin og á eftir að vinna vel fyrir Akureyringa, rétt eins og hún hefur gert hingað til.

En það vekur vissulega athygli mína að Kristján taki við embætti forseta bæjarstjórnar, þá líklega á sama tíma.

Þýðir það að hann ætli ekki að segja sig frá bæjarstjórnarstörfum á Akureyri, þegar hann hefur þingmennsku næsta vor? 

Ég ætla að vona að svo verði, enda hef ég marglýst þeirri skoðun minni að sama fólkið eigi ekki að sitja í sveitarstjórnum og á Alþingi.  Sjálfstæðisflokkurinn (og vonandi aðrir flokkar einnig) hefur nóg mannval, þannig að til þess á ekki að þurfa að koma.

En ég skil ekki alveg tilganginn með því að sitja sem forseti, ef meiningin er að segja af sér í vor, væri ekki betra að ný manneskja tæki við, á meðan hún nyti þess að hafa Kristján ennþá í bæjarstjórninni og nyti reynslu hans?

Það verður fróðlegt að fylgjast hver verðu niðurstaðan í þessu máli.


mbl.is Sigrún Björk verður bæjarstjóri á Akureyri í byrjun næsta árs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband