Gengur þetta upp. Örlitlir kvótaþankar.

Það er stundum merkilegt að fylgjast með umræðunni á Íslandi, sérstaklega svona úr fjarlægð eins og ég geri núna.

Umræða um úrskurð Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna, hvað varðar Íslenska kvótakerfið hefur verið fyrirferðarmikil undanfarnar vikur.  Sú niðurstaða nefndarinnar að núverandi fyrirkomulag á Íslandi stangist á við mannréttindi og þurfi að afnema.  Hefur mér skilist að nefndin (sem réttilega hefur verið bent á að hefur ef til vill ekki mikla þekkingu á sjávarútvegi og verndun fiskistofna) hafi komist að þeirri niðurstöðu að úthlutun veiðiheimilda byggð á veiðireynslu og sem loki þar með aðra frá veiðum, brjóti í bága við mannréttindi.

Margir hafa farið mikinn í umræðunni og talið einsýnt að Íslendingar séu skuldbundnir til að hlýta niðurstöðum nefndarinnar.

Síðan hefur annar hópur, ekki síður hávær (ég fæ það jafnvel á tilfinninguna að sumir einstaklingar séu í báðum hópunum) talað um nauðsyn þess að Ísland gangi í Evrópusambandið.

Í þeirri umræðu er fullyrt að vissulega muni "Brussel" úthluta veiðiheimildum við Íslandsstrendur, en það muni alfarið verða byggt á veiðireynslu og því þurfi Íslendingar ekkert að óttast, þar fái engir að veiða nema þeir.

En hvað skyldi Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna segja um það?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband