Vændiskonur safna fyrir forsetaframbjóðanda

Ég man ekki eftir því í fljótu bragði að vændishús eða vændiskonur hafi verið atkvæðamikil í stjórnmálum, ja nema auðvitað þegar slíkt hefur stuðlað að falli einhvers stjórnmálmannsins, sem ekki hefur mátt vamm sitt vita.

Það var ekki laust við að ég glotti út í annað þegar ég sá myndskeið á vef Globe and Mail þar sem vændiskonur sem starfa á vændishúsi í Nevada,  eru ekki að reyna að koma stjórnmálamanni í vandræði, heldur þvert á móti eru að reyna að fá hann kjörinn.

Þar er um að ræða Ron Paul, sem tekur þátt í forkosningum hjá repúblikunum og má sjá í myndbandinu stúlkurnar biðja viðskiptavini um fé til stuðnings Ron Paul og segjast ætla að hvetja viðskiptavini sína til að kjósa hann.

Það er óhætt að segja að pólítíkin getur tekið á sig skrýtnar myndir og farið undarlegar leiðir.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband