On The Road Again

Skutlaðist til Montreal á fimmtudaginn, fram og til baka sama daginn, ríflega 1100 km. Þetta var 11/11 ferð, það er að segja tók akkúrat 12 tíma, þar af ríflega 10 á keyrslu.

En með þessari ferð lauk veru mömmu/ömmu í Kanada.  Foringinn var ekki alls kostar ánægður, en þegar ég kom heim hafði hann hreiðrað um sig í "ömmurúmi" og svaf þar svefni hinna réttlátu, rétt eins og hann hafði gert svo oft á meðan hún var hér.

En frænkur hans eru hér ennþá þannig að það dró verulega úr sársaukanum.

En ferðin til Montreal var tíðindalítil, en seinkun var á brottförinni þó, ca. 1 og 1/2 tíma.  Það hefur því verið seinkun bæði við komu og brottför hjá mömmu, spurning hvort að það er regla frekar en undantekning í Montreal fluginu?

Hitti nokkra Íslendinga á flugvellinum, allir báru Kanada vel söguna, sérstaklega þó verslununum hér, enda líklega ekki erfitt að kæta ferðalanga frá "dýrasta" landi heims.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband