Misjafnir eggjasiðir eftir löndum

Ég vona að ég verði ekki sakaður um að stuðla að "upplýsingaóreiðu" en eftir því sem ég kemst næst skiptir meginmáli í hvaða landi egg eru keypt, hvort beri að geyma þau í kæli eður ei.

Í Bandaríkjunum og ýmsum öðrum löndum eru egg þvegin með sápu og heitu vatni áður en þau eru send í verslanir.

Það eyðir náttúrulegri "verndarhúð" sem er á eggjunum.  Því er nauðsynlegt að hafa þau í kæli.

Það má lesa fróðleik þessu tengdu víða, svo sem á eggsafety.org, og hjá NPR.

Hvernig þessum málum er háttað á Íslandi hef ég ekki hugmynd um.

 

 

 


mbl.is Hvort á að geyma egg í kæli eða við stofuhita?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband