Er þá bílastæðavandinn við framhalds- og háskóla Íslendinga leystur?

Það er hreint undravert að heyra um hvað ungir Íslendingar (sem og ungt fólk annars staðar um heiminn) er orðið meðvitað um "umhverfisvánna" og "hamfarahlýnun".

Og það krefst aðgerða án tafa.

Það verður að draga úr losun koltvísýrings.

Skyldi það ekki þýða að seinna í vikunni verða öll vandamál hvað varðar skort á bílastæðum úr sögunni í skólum á Íslandi?

Segir það sig eiginlega ekki sjálft?

Varla þyrpast þessi "grænu" ungmenni á einkabílnum í skólann.

Skyldi það einnig þýða að það verði engar útskriftarferðir í vor og haust?

Losunin frá fluginu er víst eitt helsta vandamálið.

Skyldi blómatími farþegaskipanna renna upp aftur?

En þau menga á meira en meðalþorp eftir því sem ég kemst næst.

Líklega eru gönguferðir með bakpoka það eina sem "blífar" fyrir útskriftarferðirnar.

En það er skratti lýjandi að bera allan vökvann.

Skyldi vera til einhver lausn á því?

 


mbl.is „Ákveðin vonbrigði“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Já nafni, allar útskriftarferðir verði lagðar af nú verður ungviðið bara að halda sig heima og mér sýnist ráðherrar og embættismenn ættu að gera það líka og notast við hjól til að komast leiðar sinnar sérstaklega á Reykjavíkursvæðinu. Forsætisráðherra hlýtur að gefa gott fordæmi í þeim efnum, leggja sitt af mörkum.

Tómas Ibsen Halldórsson, 30.9.2019 kl. 10:05

2 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Unglingarnir bara :

1: sleppa skóla alfarið, eða,

2: fara í skóla í útlöndum.

"Vandamál" leyst.

Ásgrímur Hartmannsson, 30.9.2019 kl. 15:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband