Er þörf á siðanefnd Alþingis?

Það er mín skoðun, rétt eins og ýmissa annara að það sé óþarfi að Alþingi hafi siðanefnd.  Það sé einfaldlega verkefni kjósenda að dæma um siðferði alþingismanna - á fjögurra ára fresti, eða oftar ef svo ber undir.

Fyrsti úrskurður siðanefndar Alþingis gerir ekkert nema að styðja undir þá skoðun mína.

Mér þykir líklegt að þingmaður Pírata, Þórhildur Sunna, hafi, með hliðsjón af þeim reglum sem gilda nú, þeim ramma sem siðanefnd hafi verið sett, skaðað ímynd Alþingis.

Þannig eru þær reglur.

En þegar ég beiti heilbrigðri skynsemi, er mér nákæmlega sama um þau orð sem Þórhildur Sunna lét falla.

Þau féllu einfaldlega í "hita leiksins", eins og oft vill verð í pólítísku ati.

Engin ástæða til þess að æsa sig yfir þeim eða ræsa út nefndir.

En krafa Pírata þess efnis að Siðanefnd rannsaki hvort að ásakanir Þórhildar Sunnu, eigi við rök að styðjast er jafn mikið út í hött.

Ég get ekki beðið eftir því að Miðflokksmenn, sem urðu sér til skammar á Klaustri, geri sambærilega kröfu.

Þannig yrði "Siðanefnd Alþingis" að hinni einu og sönnu "sannleiksnefnd".

Að mínu mati er að eina sem þetta mál hefur leitt í ljós, er að "Siðanefnd Alþingis" ætti að leggja niður, þörfin fyrir siðanefnd er ekki til staðar, kjósendur geta séð um "siðferðislegt aðhald".

Ásmundur Friðriksson, Þórhildur Sunna, "Klaustursmenn" sem og allir aðrir þingmenn og frambjóðendur verða vegnir og metnir í næstu kosningum, bæði útfrá siðferðisálitamálum sem annarri framgöngu.

Næsta víst er að málefnin vega misþungt hjá kjósendum og eru sett mismunandi framlega þegar í röðina.

Rétt eins og vera ber.

Tímabært að leggja niður siðanefnd.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján G. Arngrímsson

 Kom að því að ég yrði innilega sammála þér.

Kristján G. Arngrímsson, 31.5.2019 kl. 22:22

2 Smámynd: G. Tómas Gunnarsson

@Kristján, þakka þér fyrir þetta. Þetta er auðvitað háalvarlegt mál og kólnar nú verulega í helvíti :-)

En bestu kveðjur, þú verður vonandi fljótlega ósammála mér um eitthvað.

G. Tómas Gunnarsson, 31.5.2019 kl. 22:41

3 identicon

Ég hef verulegar áhyggjur af þessu, ég verð að segja það.

ls (IP-tala skráð) 3.6.2019 kl. 12:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband