Ólíklegt að nokkuð verði aðhafst

Persónulega tel ég engar líkur á því að nokkuð frekar verði aðhafst í þessu máli af hálfu Alþingis eða hins opinbera.

Sem er synd, því mikil þörf er á að farið verði yfir málið og "síðari einkavæðing bankanna" krufin til mergjar. Sama gildir um samstarf Íslands og IMF (Alþjóða gjaldeyrissjóðsins).

Ekki til að "hengja neinn upp", heldur til að læra af, bæði því sem vel var gert og því sem fór miður.

Það er margt sem bendir til þess að þessi mál séu á ýmsan hátt af svipuðum meiði og IceSave samningurinn fyrsti. Það er að segja að þeir sem stóðu að málinu af Íslands hálfu hafi hreinlega ekki verið starfinu vaxnir, ekki haft það sem til þurfti á móti hágæða vönum erlendum samningamönnum.

Til samanburðar má nefna að nú telja Bretar sig ekki hafa á að skipa nægilega góðum samningamönnum í viðskiptasamningum á móti Evrópusambandinu vegna "Brexit" (enda ekki getað gert sjálfstæða viðskiptasamninga í yfir 40 ár, vegna veru sinnar í því sama "Sambandi"), þeir leita því líklega til Ástralíu, Nýja-Sjálands og Kanada og fá "lánaða" þaðan samningamenn.

Þó að Bretar séu meira en 150sinnum fjölmennari en Íslendingar, eru þeir ekki yfir það hafnir að ráða sér samningamenn erlendis frá.

En Steingrímur sem "varla át eða svaf", og þeir sem voru í kringum hann gerðu að sjálfsögðu engin mistök. Um það virðast flestir alþingismenn og ótrúlega margir Íslendingar reiðubúnir að þjappa sér.

Vek að lokum athygli á ágætum pistli Marinós Njálssonar um þetta mál, góð lesning og gott að lesa athugasemdirnar sömuleiðis.

 

 

 


mbl.is Vigdís biður stjórnskipunarnefnd um rannsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján G. Arngrímsson

Vigdísi blessaðri tókst að klúðra þessu svo gjörsamlega að leitun er að öðru eins. Hún skaut sig ekki í fótinn heldur skaut hún undan sér og málefninu báða fæturna.

Kristján G. Arngrímsson, 24.9.2016 kl. 22:48

2 Smámynd: G. Tómas Gunnarsson

@Kristján. Þakka þér fyrir þetta.  Ég er sammála því að það var ekki vel staðið að skýrslunni, framsetningu hennar og kynningu.

En það er líka með eindæmum hvernig andstæðingar og fjölmiðlar hafa almennt tekið á málinu.

Efnið hefur engu skipt, formið öllu og gott dæmi um rangfærslur, bæði í fjölmiðlum og hjá stjórnarandstöðu, er þegar vitnað er til skýrslu Brynjars Níelssonar, og sagt að í henni mætti finna þá niðurstöðu að frekari rannsókna væri ekki þörf.

En í þeirri skýrslu er þvert á móti hvatt til frekari rannsókna á ferlinu.

Þannig er "Ísland í dag", ef svo má að orði komast og eins og oft áður skiptir meira máli hver segir, en hvað er sagt.

G. Tómas Gunnarsson, 25.9.2016 kl. 12:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband