Næstum tvær tankfyllingar af trjám og poki af bullshit

Fórum á mánudag og versluðum tré og runna.  Nú er auðvitað allt mælt í tankfyllingum og ánægjan sem hefst af trjánum orðið hálfgert aukaatriði.

En keypt var 1. nektarínutré, 1. plómutré, 4. lítil cedartré og svo 2 bláberjarunnar.  Með þessu var svo keyptur 1. poki af bullshit (það stendur reyndar combusted cattle manure á pokanum, en mér þykir skemmtilegt að bera fram það sem betur hljómar).

Það vantaði ekki nema 8 dollara til að þetta næði 2. tankfyllingum, en vissulega þurfum við hér þar sem bensínlíterinn kostar ekki nema ca. 60 krónur að gera betur en sem nemur einni tankfyllingu.

Vonir standa til að það náist slysalaus dagur í dag og plöntun verði nú seinnipartinn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband