Að ganga á guðsmanns vegum

Það er ekki skrýtið að Obama reyni að setja fjarlægð á milli sín og sóknarprests síns.  Yfirlýsingar sóknarprestsins hjálps Obama ekki baráttunni, hvorki nú í forkosningunum, eða síðar ef hann fer fram sem frambjóðandi democrata.

En er presturinn að segja eitthvað sem hann hefur ekki sagt áður?

Hefur ekki Obama setið undir ræðum þessa prests í u.þ.b. 20. ár?  Eða hefur hann aðeins verið hálfdottandi í kirkju á sunnudagsmorgnum?

Sjálfum þykir mér ekki ótrúlegt og í raun ekki óeðlilegt að einhverjir snúi baki við Obama fyrir vikið.  Bæði vegna þeirrar staðreyndar að trúmál spila stóra (og óþægilega að mínu mati) rullu í Bandarískum stjórnmálum.  Ég hef það einnig á tilfinningunni að margir þeir sem finnst að draga þurfi úr áhrifum kirkju í Bandarískum stjórnmálum styðji Obama, og þyki því óþægilegt þegar presturinn "hans" er svo yfirlíysingaglaður.

Sjálfur held ég að ég geti fullyrt að ef ég væri að velja á milli frambjóðenda (t.d. á Íslandi) þá myndi það ótvírætt virka neikvætt á mig ef frambjóðandi hefði sterk tengsl við "ofsatrúarsöfnuð".  Mín skoðun er einfaldlega að best sé að skýr skil séu á milli stjórnvalda og trúarsöfnuða.

Þetta breytir þó ekki þeirri skoðun minni að ég vil sjá Obama og McCain kljást um forsetaembættið.


mbl.is Obama snýr baki við prestinum sínum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Helgason

 'Eg vorkenni Obama greyinu þessi  sóknarprestur er alveg hræðilegur , Vá hann allgert illmenni og athyglis sjúkur ég er þér sammála  virka neikvætt á mig ef frambjóðandi hefði sterk tengsl við  svona "ofsatrúarsöfnuð".  þetta eyðlegur rosalega fyrir Obama mér finnst hann mjög efnilegur frambjóðendi.

Jóhann Helgason, 30.4.2008 kl. 19:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband