"Sambandið" er umbúðalaust og Íslendingum líkar ekki það sem þeir sjá

Það er rétt hjá Elleman-Jensen að það Evrópusambandið er ekki lokaður pakki. Það er umbúðalaust að aðildarríki þurfa að aðlaga sig að að reglum þess, þó að umsemjanlegt sé hversu lengi það megi taka.

Það má þó halda því fram að um sé að ræða all nokkurt "hismi", en kjarninn er óumdeilanlegur og liggur frammi.  Umbúðalaus.

Það þarf því ekkert að kíkja í pakkann, hann blasir við Íslendingum jafnt sem öðrum.

Og Íslendingum líkar ekki það sem er umbúðalaust á borðinu.  Skoðanakannanir hafa sýnt að öruggur meirihluti vill ekki ganga í "Sambandið". Niðurstöður þeirra hafa verið á þann veg í rúmlega 7 ár.

Það er þess vegna sem "Sambandssinnar" hófu skollaleikinn um að "kíkja í pakkann".  Engin var raunverulega "Sambandssinni" heldur voru þeir "viðræðusinnar".  Hver er svo óforskammaður að vera á móti því að ræða málin?

En það er er engin ástæða til að hefja aðlögunarviðræður við "Samband" sem Íslendingar vilja ekki ganga í.

Enda steyttu aðlögunarviðræðurnar skjótt á skeri. 

Ekki síst vegna þeirra skilyrða sem Alþingi setti viðræðunefndinni.  "Sambandið" vildi ekki ræða málin á þeim grundvelli. Sjávarútvegskaflinn fékkst t.d. ekki opnaður.

En enn ræða ýmsir íslenskir stjórnmálamenn um nauðsyn þess að kjósa um áframhald viðræðna sem sigldu í strand fyrir um 5 árum.

Og enn eru þeir til sem láta blekkjast.

 


mbl.is „Þið vitið hvað er í pakkanum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján G. Arngrímsson

Ég held að það séu eiginlega allir hættir að tala um aðildarumsókn Íslands nema þú, Tommi minn.

Kristján G. Arngrímsson, 11.3.2017 kl. 15:17

2 Smámynd: G. Tómas Gunnarsson

@Kristján þakka þér fyrir þetta.  Það er ekki oft sem ég óska þess að þú hafir rétt fyrir þér :-) en svo er þó í þetta sinn.

En því miður er það eiuns og oft áður, að þú talar tóma vitleysu :-)

Þó að stuðningur við aðildarumsókn og jafnvel viðræður fari þverrandi á Íslandi, er því miður einn hópur sem sker sig úr hvað varðar stuðning við "Sambandsaðild".

Það er ríkisstjórn Íslands.  Þar er stuðningur 45%.

Það er því full ástæða til þess að halda vöku sinni og það ættu Íslendingar almennt að gera, í það minnsta þangað til Viðreisn og Björt framtíð tilkynna um stefnubreytingu.

http://www.washingtontimes.com/news/2017/feb/23/iceland-debates-joining-european-union-as-others-e/

G. Tómas Gunnarsson, 14.3.2017 kl. 16:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband