Himinháir skattar hvetja til sóunar

Það er gömul saga og ný að þegar þarf að ná í fleiri krónur í ríkiskassann, þá ákveður ríkísstjórnin að hækka álögur á áfengi.

Í og með er þessi leið valin vegna þess að hún er án pólítískrar áhættu.  Því sem næst engin stjórnmálamaður vogar sér að andmæla slíkum fyrirætlunum, vegna þess að það er pólítískt hættulegt að taka sér stöðu með "drykkjumönnum" og áfengi er slíkt böl að allir ættu að sammælast um að hafa það sem dýrast.

Persónulega finnst mér sorglegt að horfa upp á Sjálfstæðismenn taka þátt í slíku.

Ég myndi vilja minna þá að að það er ekki einungis rétt að almenningur geti keypt sér hvítvín með humrinum á sunnudögum, heldur ætti hann að geta gert það án þess að velta því um of fyrir sér "hvort hann hafi efni á að kaupa sér nýja skó", sömuleiðis.

Það sem líka skiptir máli er að slíkir ofurskattar sem nú eru lagðir á áfengi á Íslandi skekkja verðskyn almennings og hvetja til sóunnar.

Allt verð á áfengi fletst út með slíkri ofurskattlagningu.

Mjög líklegt er að það auki kostnað við heildarinnflutning Íslendinga á áfengi og sömuleiðis er það hvetjandi til aukinnar neyslu á áfengi í dýrari umbúðum, sem eykur kostnað, mengun og stækkar "kolefnispor" Íslendinga, ef menn vilja velta slíku fyrir sér.

Hár áfengisskattur letur Íslendinga frá því að velja sér ódýrari tegundir til drykkjar. Ótrúlega lítill munur er t.d. á því að kaupa vodkareitil og svo aftur sama magn af cognaki.

Munurinn á innkaupsverði er hins vegar verulegur.

Sama gildir t.d. um muninn á því að kaupa sér rauðvínsflösku og svo sömu tegund í "belju", sem jafngildir 4. flöskum af sama víni.  Munurinn á ódýru rauðvíni í flösku eða "belju" á Íslandi getur numið ca. 100 kr. per flösku, eða innan við 10%. Varla þess virði að eltast við.

Víða er slíkur munur á milli 30 og 40%, enda flutningskostnaður mikið lægri á "beljunni" og umbúðakostnaður sömuleiðis.  Magnkaup ýta sömuleiðis undir lægra verð.

En fyrir íslenska innflytjendur hefur örlítil lækkun á heildsöluverði lítinn eða engan tilgang.  Hann hverfur einfaldlega í "skattahítinni".

Því ýtir ofurskattlagning hvata til samkeppni í raun algerlega til hliðar.

Þegar hið opinbera er farið að taka til sín vel yfir 90% af útsöluverði vodkaflösku blasir við að til dæmis 8% verðlækkun af hendi framleiðenda eða heildsala hefur lítinn tilgang.

Hér er skattlagningin löngu farin yfir velsæmismörk og farin að hafa veruleg áhrif á neyslumynstur, ekki eingöngu í þá átt að neytandinn velji sér vöru sem er dýrari í innkaupum og óhagstæðari fyrir þjóðarbúið og umhverfið, heldur ekki síður að hann velur sér "alt" vörur svo sem heimabrugg og smyglvarning.

P.S. Það er svo sérstakt umhugsunarefni að hið opinbera rekur svo einnig aðra vínbúð sem selur áfengi mun ódýrara, en þar fá einungis þeir Íslendingar að versla sem fara til útlanda (sem margir gera oft á ári) svo og þeir rúmlega ein og hálf milljón útlendinga sem koma til Íslands.

Er það réttlætanlegt?

 


mbl.is Áfengisskatturinn hækkar um áramót
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Skattlagning á íslandi veldur innkaupum í útlöndum.

Er það sem ég hef mest tekið eftir.

Vantar þig skó og nýjar buxur?  Bíddu með það þartil í sumarfríinu.  (Það er líka aðeins billegra að eyða sumarfríinu í útlöndum, svo maður bara gerir það.  Þ.e.a.s. ef maður hangir ekki bara heima.)

Ásgrímur Hartmannsson, 10.12.2016 kl. 19:28

2 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Við gamlir brennivíns bersekkir látum heimska ríkisstjóra ekkert slá okkur útaf laginu og legum í rauðvíns kút og annan hvítvíns frá okur Ámunni , en endurskoðum svo málið með vorinu og bruggum ljóst rabbaravín handa dömunum og smíðum okkur svo landa að Finnskum hætti en það er bara hrein ó bragðbætur Vodki.  

Við hérna norður frá erum svo vön því að vera niðurlögð af yfirvöldum að það kemur okkur ekkert á óvart og erum þess vegna ávalt viðbúin, sérlega þá stefnir í þorrablót. 

Verst að það er bannað nú orðið að styðja sig við sverð og meira að segja gamlir þurfa að styðja sig við fúaspýtur sem er aldeilis ósæmilegt, í landi þar sem útlendingar þarfnast dauða annan hvern dag. Það gæti orðið alla sæmileg tekju bót fyrir gamlingja að hafa smá kvóta af biluðum útlendingum til að sálga án mengunar, en heimild til að ganga við sverð eða öx er þörf til að vel megi fara.   

Af þeirri ráðstöfun væri minni hætta á eldsvoðum.  En sú heimild gæfi Gömlum líka færi á að tappa af efnuðum ráðherrum um strjúpann.  

Hrólfur Þ Hraundal, 10.12.2016 kl. 21:56

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Vegna þess að þú nefnir það Hartmannsson, þá hef ég ekki keypt skó á Íslandi í um þrjátíu ár og þvílík frelsun þegar ég fékk netið og áttaði mig á hvað erlendir skókaupmenn eru miklu betri.   

Hrólfur Þ Hraundal, 10.12.2016 kl. 22:24

4 Smámynd: G. Tómas Gunnarsson

@Ásgrímur Þakka þér fyrir þetta.  Það er alveg rétt að há skattlagning veldur því að betra er að kaupa annars staðar.  Þess vegna er það sorglegt að horfa upp á nú, þegar vörugjöld og tollar eru að lækka og hverfa, að gamli stíllinn skuli viðhafður hvað varðar áfengi.

@Hrólfur  Þakka þér fyrir þetta. Það er auðvitað svo að hollur er heimafengin baggi, sérstaklega er ríkið gengur fram með offorsi í skattlagningu.  Það vita allir Íslendingar og fagna þó því að þó að skattur hafi verið hækkaður á áfengi, var hann nýlega lækkaður á sykri.

Sjálfbjargarviðleitnin hverfur aldrei, en það er leiðinglegt að horfa upp á gamaldags hugsunarhátt hvað varðar áfengi, sem þegar upp er staðið gagnast engum.  Hvorki þegnunum né hinu opinbera.

Ef til vill er treyst á neysluaukninguna sem kemur vegna ferðamanna.

G. Tómas Gunnarsson, 12.12.2016 kl. 14:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband