Villandi fyrirsögn, ef marka má það sem er skrifað í fréttinni

Ef það er rétt sem lesa má í fréttinni er fyrirsögn fréttarinnar, "Vilja spyrja þjóðina um viðræðurnar" verulega misvísandi og raunar að mínu mati kolröng. Í fréttinni má lesa t.d.: Við mun­um fara í þjóðar­at­kvæðagreiðslu um það hvort við ætl­um að ganga inn í Evr­ópu­sam­bandið, já eða nei,“ sagði Lilja Dögg af­drátt­ar­laust.

Sem og: „Ég er ekki hlynnt­ur inn­göngu inn í Evr­ópu­sam­bandið. En þjóðar­at­kvæðagreiðsla um hvort við göng­um inn eða ekki er mjög álit­leg,“ sagði Teit­ur Björn Ein­ars­son full­trúi Sjálf­stæðis­flokks­ins. 

Ef þetta er rétt er rangt að segja að fulltrúar allra stjórnmálaflokkanna á þingi utan Sjálfstæðisflokkins telji ákjósanlegt að spyrja þjóðina um áframhaldandi viðræður um inngöngu í Evrópusambandið og sömuleiðis gerir það fyrirsögnina nokkuð villandi. Nema að afsökunin sé að fyrirsögnin eigi við "hina" flokkana.

Það virðist af þessu að Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn, í það minnsta fulltrúar þeirra á þessu fundi, myndu frekar vilja spyrja um hvort kjósendur vilji ganga í "Sambandið" eður ei. 

Á þessu tvennu er all nokkur munur.

Þessi klausa í fréttinni vekur svo nokkra athygli: 

Alm­ar Guðmunds­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­taka iðnaðar­ins, sem stýrði umræðunum greip bolt­ann á lofti og benti Lilju Dögg á að Írland hefði samt sem áður náð að laða til sín fjölda tæknifyr­ir­tækja til starfa í land­inu. Lilja Dögg taldi að um­hverfið á Íslandi væri ákjós­an­legt fyr­ir slíkt hið sama. 

Flestir ef ekki allir gera sér grein fyrir því að það sem hefur átt mestan þátt í því að laða tæknifyrirtæki til Írlands er hið hagstæða skattaumhverfi sem þar hefur mátt finna og Evrópusambandið er svo ósátt við.

Það þarf ekki að leita lengra en til "Applemálsins" svokallaða til að komast í því hvernig í pottinn er búið.

Ef marka má Evrópusambandsúrskurðinn hafði Apple u.þ.b. 14 milljarða (euroa) ástæðna til þess að setja stærstan part starfsemi sinnar í Evrópu niður á Írlandi.

Ef til vill hefði fundarstjóri átt að spyrja stjórnmálamennina hvort að þeir teldu álitlegt fyrir Ísland að velja þá leið?

 

 


mbl.is Vilja spyrja þjóðina um viðræðurnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haukur Árnason

Þetta kemur alltof oft fyrir, að fyrirsögn frétta er í engu samræmi við textann sem filgir. Stundum rekur mann í rogastans.

Eru fréttamenn ekki sæmilega menntaðir?

Haukur Árnason, 4.10.2016 kl. 20:36

2 Smámynd: G. Tómas Gunnarsson

@Haukur Þakka þér fyrir þetta. Ég er sammála því að þetta er allt of algengt og virðist ef eitthvað er aukast.

Ef rétt er eftir Lilju haft í fréttinni, er fyrsta setning fréttarinnar, "Full­trú­ar allra stjórn­mála­flokk­anna á þingi, utan Sjálf­stæðis­flokks­ins, telja ákjós­an­legt að spyrja þjóðina um áfram­hald­andi viðræður um inn­göngu í Evr­ópu­sam­bandið.", beinlínis röng.

Því miður er slíkt heldur ekkert einsdæmi, en þó er sjaldgæft að frétt sé beinlínis í mótsögn við sjálfa sig.

Fréttamenn eru sjálfsagt heilt yfir ágætlega menntaðir, en því miður virðist stundum sem skynsemi vanti frekar.  Svo finnst mér ég sjá dæmi um að skoðanir þess sem ritar liti fréttir, æ oftar, en það er önnur saga.

G. Tómas Gunnarsson, 5.10.2016 kl. 10:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband