8.2.2017 | 13:09
Skemmtileg tilviljun?
Það er óneitanlega skemmtilegt að daginn eftir að umræður spunnust á Alþingi um að orðnotkunin "hagsýnar húsmæður" væri óviðeigandi, skuli vera lagt fram frumvarp um afnám laga um orlof húsmæðra.
Það er meira að segja búið að biðjast afsökunar á notkuninni.
Það er því varla seinna vænna að leggja niður óviðeigandi orlof, eða hvað?
Varla fara þær í stórum hópum í slíkt orlof nú til dags?
En hvaða þingmenn skyldu verða á móti niðurfellingu laganna?
Varla hinar meintu "hagsýnu húsmæður"?
Húsmæðraorlof verði afnumið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)